Sumarið 1972 er Reykjavík í uppnámi; heimsmeistaraeinvígið í skák er að hefjast í Laugardalshöll og bærinn fullur af útlendingum. Kalda stríðið er í algleymingi og fulltrúar austurs og vesturs fylgja sínum mönnum, Spassky og Fischer, að taflborðinu. Meðan undirbúningurinn stendur sem hæst fer meinlaus unglingspiltur í bíó og verður fyrir fólskulegri árás. Lögreglan er önnum kafin en Marion Briem, sem stýrir rannsókn málsins, einsetur sér að skilj... meira