Á kaldri vetrarnóttu er löngu brottfluttur Íslendingur allt í einu staddur fyrir utan heimili æskuástarinnar. Þau áttu saman sjö mánuði fyrir sautján árum en hafa ekki sést síðan. Hún hefur þó aldrei vikið úr huga hans. Hvað gerist í nótt? Ævilok eða nýtt upphaf? Heillandi saga um ást og aðskilnað, einsemd og eftirsjá.