Á tunglinu Fold, sem snýst um gríðarstóran gasrisa í fjarlægu sólkerfi, hefur lítil nýlenda manna skotið rótum. Lífsbaráttan er hörð í glímu við óblíð náttúruöfl. Þegar undarlegar verur, líkastar risavöxnum kóngulóm, taka að herja á íbúana reynir þó fyrst á styrk þjóðarinnar. Eða eru hinir raunverulegu óvinir kannski inngróið misrétti í þjóðskipulaginu, huglausir og værukærir leiðtogar og spillingin sem gegnsýrir efstu lög samfélagsins? <p... meira