Erlendur er á æskuslóðum sínum austanlands og fortíðin sækir á: atvik úr hans eigin lífi sem og önnur óleyst og óuppgerð mál. Fyrir mörgum áratugum urðu þarna skelfilegir atburðir þegar stór hópur breskra hermanna lenti í óveðri í fjöllunum. Sumir komust til byggða við illan leik, aðrir ekki. En samtímis hvarf ung kona á sama stað og fannst aldrei. Saga hennar vekur forvitni Erlendar sem þyrstir ákaft í svör við gátum fortíðar. Furðustrandir e... meira