Þorpið mitt liggur í djúpum dal milli hárra fjalla. Sumir segja að það sé á Vestfjörðum, aðrir að það sé á Austfjörðum og enn aðrir fullyrða að það sé á hálendinu; en satt að segja veit fólkið sem býr hérna ekkert um hvar það er… Sögumaður hér er tólf ára gömul stúlka sem ber nafn Nínu Bjarkar Árnadóttur, uppáhaldsskáldkonu móður sinnar, og hún lýsir lífinu í þorpinu sínu sem umlukið myrkum múr hvílir undir þungri glerhvelfingu. Í þessum lo... meira